Opnað hefur verið fyrir umsóknir í fjárfestingarsjóð Hviðu

Hviða fjárfestingarfélag hefur nú opnað fyrir umsóknir í fjárfestingarsjóð félagsins. Sjóðurinn styður verkefni og fyrirtæki á Suðurnesjum sem starfa á viðskiptalegum grunni og styðja við meginmarkmið félagsins – að efla nýsköpun og atvinnulíf á svæðinu.
Hviða fjárfestingarfélag leggur áherslu á að taka þátt í stofnun og rekstri fyrirtækja með hlutafjárfjárfestingum og lánveitingum, með það að markmiði að skapa varanleg verðmæti og störf.

Opið er fyrir umsóknir til 15. maí.
Umsóknareyðublað er að finna hér: https://hvida.is/SaekjaUm/