Fjárfestingarfélag Hviðu hefur einsett sér að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi persónuupplýsinga sem Hviða fjárfestingarfélag vinnur. Hviða fjárfestingarfélag hefur á þeim grundvelli sett sér svohljóðandi persónuverndarstefnu:
Hviða fjárfestingarfélag leitast við að uppfylla í hvívetna þá persónuverndarlöggjöf sem er í gildi hverju sinni og er stefna þessi byggð á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga („persónuverndarlög“).
Með stefnu þessari leggur Hviða fjárfestingarfélag áherslu á mikilvægi þess að gætt sé að því að öll vinnsla persónuupplýsinga hjá félaginu fari fram í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga.
Persónuverndarstefna þessi lýsir vinnslu Hviðu fjárfestingarfélags á persónuupplýsingum og mun Hviða fjárfestingarfélag auk þess leitast við að veita þeim einstaklingum sem unnið er með persónuupplýsingar um nánari fræðslu um þá vinnslu sem félagið hefur með höndum hverju sinni, eftir því sem við á.
Persónuupplýsingar í skilningi stefnu þessarar eru hvers kyns upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling, þ.e. upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til ákveðins einstaklings. Upplýsingar sem eru ópersónugreinanlegar teljast ekki persónuupplýsingar.
Undir hugtakið vinnsla fellur öll notkun og meðferð persónuupplýsinga, s.s. söfnun, skráning, varðveisla og eyðing.
Öll vinnsla sambandsins á persónuupplýsingum fer fram í skýrum tilgangi og byggist á lögmætum grundvelli samkvæmt persónuverndarlögum. Gætt er að því að persónuupplýsingar séu ekki unnar frekar á þann hátt að vinnslan sé ósamrýmanleg hinum upprunalega tilgangi vinnslunnar.
Hviða fjárfestingarfélag leggur áherslu á að ekki sé gengið lengra í vinnslu persónuupplýsinga en þörf krefur, til að ná því markmiði sem stefnt er að með vinnslunni.
Til þess að tryggja að unnið sé með persónuupplýsingar í samræmi við meginreglur persónuverndarlaga veitir Hviða fjárfestingarfélag starfsfólki sínu fræðslu og þjálfun í því hvernig skuli umgangast slíkar upplýsingar.
Við rekstur Hviðu fjárfestingarfélags safnast óhjákvæmilega ýmsar persónuupplýsingar um mismunandi hópa einstaklinga og er vinnsla slíkra upplýsinga oft á tíðum nauðsynleg svo félagið geti veitt lögbundna þjónustu.
Hviða fjárfestingarfélag safnar og vinnur t.a.m. með persónuupplýsingar um:
Hviða fjárfestingarfélag safnar og varðveitir ýmsar persónuupplýsingar um framangreinda flokka einstaklinga, en þó eingöngu upplýsingum sem eru nauðsynlegar og viðeigandi með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar hverju sinni. Þannig er ólíkum persónuupplýsingum safnað um ólíka flokka einstaklinga og fer vinnsla og söfnun á persónuupplýsingum eftir eðli sambandsins.
Undir tilteknum kringumstæðum safnar Hviða fjárfestingarfélag viðkvæmum persónuupplýsingum, s.s. um heilsufar, trúarbrögð, aðild að stéttarfélagi og þjóðernislegan uppruna. Sérstök aðgát skal höfð við vinnslu slíkra upplýsinga.
Hviða fjárfestingarfélag aflar að mestu persónuupplýsinga beint frá þeim einstaklingi sem upplýsingarnar varða. Við tilteknar aðstæður geta upplýsingarnar þó komið frá þriðja aðila, t.d. Þjóðskrá, heilbrigðisstofnun eða öðrum þriðja aðila. Þegar upplýsinga er aflað frá þriðja aðila mun Hviða fjárfestingarfélag leitast við að upplýsa um slíkt, eftir því sem við á.
Persónuupplýsingum er fyrst og fremst safnað til að geta uppfyllt skyldur sínar á grundvelli laga sem gilda um rekstur og þjónustu Hviðu fjárfestingarfélags. Þá safnar Hviða fjárfestingarfélag einnig persónuupplýsingum vegna samningssambands sem félagið er í, t.d. við starfsfólk eða verktaka, eða til að koma slíku samningssambandi á. s.s. vegna eftirlits í öryggis- og eignavörsluskyni. Sem opinber aðili getur vinnsla Hviðu fjárfestingarfélags jafnframt verið nauðsynleg við beitingu þess opinbera valds sem Hviða fjárfestingarfélag fer með.
Þar sem Hviða fjárfestingarfélag er afhendingarskyldur aðili á grundvelli laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn er því óheimilt að ónýta eða farga nokkru skjali sem fellur undir gildissvið laganna, nema með heimild þjóðskjalavarðar. Almennt eru þær persónuupplýsingar sem Hviða fjárfestingarfélag vinnur því afhentar Þjóðskjalasafni að þrjátíu árum liðnum.
Hviða fjárfestingarfélag leitast við að grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulegra ráðstafana til að vernda persónuupplýsingar, með sértöku tilliti til eðlis þeirra. Þessum ráðstöfunum er ætlað að vernda persónuupplýsingar gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi, afritun, notkun eða miðlun þeirra.
Hviða fjárfestingarfélag stuðlar að virkri öryggisvitund starfsmanna með viðeigandi fræðslu og þjálfun varðandi öryggi við vinnslu persónuupplýsinga.
Persónuupplýsingum kann að vera miðlað til þriðja aðila af mismunandi ástæðum. Þannig geta þriðju aðilar sem veita Hviðu fjárfestingarfélagi upplýsingatækniþjónustu haft aðgang að persónuupplýsingum, en Hviðu fjárfestingarfélagi kann einnig að vera skylt samkvæmt lögum að afhenda þriðja aðila persónuupplýsingar.
Hviða fjárfestingarfélag semur eingöngu við utanaðkomandi aðila sem tryggja öryggi persónuupplýsinga sem þeir vinna með fyrir hönd félagsins. Þá mun Hviða fjárfestingarfélag ekki miðla persónuupplýsingum utan Evrópska efnahagssvæðisins nema slíkt sé heimilt á grundvelli viðeigandi persónuverndarlöggjafar.
Einstaklingar hafa rétt til að vita hvaða persónuupplýsingar Hviða fjárfestingarfélag vinnur um þá og geta eftir atvikum óskað eftir afriti af upplýsingunum. Þá geta einstaklingar fengið rangar persónuupplýsingar um sig leiðréttar og í einstaka tilvikum persónuupplýsingum um sig eytt. Jafnframt geta einstaklingar í ákveðnum tilvikum mótmælt vinnslu persónuupplýsinga og óskað eftir því að vinnsla þeirra verði takmörkuð. Óski einstaklingur eftir að flytja upplýsingar um sig til annars aðila, getur viðkomandi einnig átt rétt á að fá persónuupplýsingar sínar afhendar til sín á tölvutæku formi eða að þær verði fluttar beint til viðkomandi þriðja aðila.
Í þeim tilvikum er vinnsla Hviðu fjárfestingarfélags byggir á samþykki getur sá sem samþykkið veitti alltaf afturkallað það.
Hviða fjárfestingarfélag virðir framangreind réttindi einstaklinga samkvæmt persónuverndarlögum.
Leitast er við að bregðast við öllum beiðnum innan mánaðar frá viðtöku þeirra. Sé um að ræða umfangsmikla eða flókna beiðni mun Hviða fjárfestingarfélag upplýsa um slíkar tafir og leitast við að svara í síðasta lagi innan þriggja mánaða frá viðtöku á beiðni.
Ábyrgð á þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram hjá Hviðu fjárfestingarfélagi liggur hjá því.
Hafi einstaklingar spurningar um persónuverndarstefnu þessa eða hvernig Hviða fjárfestingarfélag varðveitir eða vinnur persónuupplýsingar að öðru leyti, geta þeir ávallt haft samband við persónuverndarfulltrúa Hviðu fjárfestingarfélags sem mun leitast við að svara fyrirspurnum og leiðbeina einstaklingum um réttindi þeirra samkvæmt persónuverndarstefnu þessari og persónuverndarlögum.
Ef einstaklingur er ósáttur við vinnslu Hviðu fjárfestingarfélags á persónuupplýsingum hans getur hann jafnframt sent erindi til Persónuverndar (www.personuvernd.is).
Persónuverndarfulltrúi Hviðu fjárfestingarfélags hefur umsjón með eftirfylgni við persónuverndarstefnu þessari og framfylgni við persónuverndarlög.
Hægt er að senda tölvupóst á netfangið hvida@hvida.is
Samskiptaupplýsingar:
Hviða fjárfestingarfélag
Skógarbraut 945
262 Reykjanesbær
Hviða fjárfestingarfélag getur frá einum tíma til annars breytt persónuverndarstefnu þessari í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum og reglugerðum eða vegna breytinga á því hvernig Hviða fjárfestingarfélag vinnur með persónuupplýsingar. Verði gerðar breytingar á stefnu þessari verður slíkt kynnt á heimasíðu Hviðu fjárfestingarfélags .
Allar breytingar sem kunna að verða gerðar á stefnunni taka gildi eftir að uppfærð útgáfa hefur verið birt.
Snjólaug Jakobsdóttir er framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins Hviðu á Suðurnesjum og verkefnastjóri fjármála og reksturs hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Hún er Njarðvíkingur og búsett í Innri Njarðvík. Snjólaug er með BSc. í viðskiptafræði, MBA gráðu í stjórnun og er löggiltur fasteigna- og skipasali. Hún hefur m.a. átt matvöruverslun, rekið fasteignasölu og unnið við birgða- og innkaupastjórnun. Snjólaug hefur áhuga á tónlist, er í kór og spilar á píanó. Hún getur ekki verið án þess að fara í ræktina og hefur gaman að fjallgöngum og flestri hreyfingu.